Árbæjarlaug : INFRARAUÐUR saunuklefi og nýjar RENNIBRAUTIR

Árbæjarlaug : INFRARAUÐUR saunuklefi og nýjar RENNIBRAUTIR

Hvað viltu láta gera? Infrarauðir geyslar geta hjálpað við td. að losa eiturefni úr líkamanum, auka virkni ónæmiskerfisins, styrkja hjarta- og æðakerfið, bæta útlit húðar, minnka verki ofl. Þú svitnar 3 sinnum meira í IR sánu heldur en í gufu sánu. Infrarauðu geislarnir leysa upp vöðvabólgur og mýkja upp vöðva hitinn frá infrarauðu geislunum smýgur allt að 4.5 cm inn í líkamann infrarauðu geislarnir lina þjáningar vegna gigtar 80% svitans er vökvi og 20% eru úrgangsefni Settur var upp infrarauður saunu klefi í Lágafellslaug og er svakalega vinsæl þar, geri mér ferð þangað til að komast í klefann en væri æðilegt að komast í uppáhaldslaugina í hverfinu sínu. Mætti bæta við rennibraut eins og í grafarvogslaug á túnið Hvers vegna viltu láta gera það?

Points

Þyrfti að setja upp í karla og kvenna klefa , þar sem að mikil aðsók yrði í þessa klefa

Frábær hugmynd

Vantar sauna í Árbæjarlaug. Sparar akstur frá hverfinu í aðrar laugar t.d mosó

Þetta er frábær hugmynd. Margir hafa verið að keyra í Mosfellsbæ til að komast í svona innrauða gufu. Hefur mjög góð áhrif á líðan, eflir heilsu og myndi gera góða laug betri. Hafa aðgang að innrauðu gufunni að utanverðu svo hún sé opin öllum.

Heilsueflandi hverfi

Mætt allveg skoða að skipta um niðurtekin loft yfir sturtum Karla meginn sem er orðin ansi óhrein og kominn tíma á að uppfæra eða hreinsa vel😀.

Væri góð viðbót við annars ágæta laug. Mikil þörf fyrir fólk sem stundar líkamsrækt og íþróttir að mýkja auma vöðva í góðum hita. Hlaupa- og hjólahópar í hverfinu yrðu væntanlega fastagestir. Mætti gjarna verða sett upp tengt búningsklefunum, þ.e. aðskilin kvenna- og karlaaðstaða.

Væri frábært að fá svona klefa

Frábær hugmynd. Er sjálfur sjúkraþjálfari og vinn mikið með fólki sem greint hefur verið með vefjagigt. Veit að þessir klefar geta verið algjör lífsbjörg fyrir fólk sem þjáist af krónískum verkjum. Ég kýs með þessu!

Er mikill verkjasjúklingur og með gigt myndi nýta mér svona klefa til að líða betur.

Líst vel á þetta. Er reyndar ekki mikið fyrir sund en er með vöðvabólgu og þessi klefi myndi hvetja mig til að koma.

Algjörlega brilliant hugmynd! Hér er oft verið að keyra upp i mosó til að fara î gufuna þar. Alveg kominn tími á að friska upp à árbæjarlaug sem var á sínum tíma flottasta þaug landsins.

Líst vel á þetta hef heyrt góðar sögur af þessum klefum

☺️

Lýst mjög vel á þessa hugmynd.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var ein af efstu fimm og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Hugmynd hefur verið aðlöguð og snýr einungis að infrarauðum saunuklefa þar sem ekki er hægt að koma fyrir nýjum rennibrautum í Árbæjarlaug. Næsta skref í verkefninu er að velja aðrar þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur, Til hamingju hugmyndin þín hlaut kosningu í Hverfið mitt 2021. Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022, niðurstöður kosninga má sjá á www.Hverfidmitt.is. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is/. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information