Örugg gönguleið við Björtuhlíð

Örugg gönguleið við Björtuhlíð

Hvað viltu láta gera? Tryggja örugga gönguleið á milli tveggja bygginga Björtuhlíðar, annars vegar við Stakkahlíð og hinsvegar við Grænuhlíð. Setja gangbraut og hraðahindrun í Bogahlíð og lagfæra gönguleið frá Bogahlíð að Björthlíð v/Grænuhlíð svo að gengið sé ekki á bílastæði. Einnig þyrfti að bæta lýsingu á leiðinni, sérstaklega á bílastæðinu og við Bogahlíð. Hvers vegna viltu láta gera það? Mikill fjöldi fólks gengur á milli leikskólanna tveggja á hverjum degi. Nú er gengið beint yfir Bogahlíðina þar sem er ekki gangbraut né hraðahindrun og þar er iðulega keyrt vel yfir hraðamörkum. Á milli Björtuhlíðar v/Grænuhlíð og Bogahlíðar er svo að stórum hluta gengið yfir óskipulagt bílastæði þar sem er ekki gangstígur eða viðeigandi lýsing. Það þarf að tryggja að hægt sé að ganga á milli leikskólanna á sem öruggastan hátt sérstaklega í ljósi þess að stór hluti vegfarenda eru leikskólabörn.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hluti hugmyndar flokkast einnig sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information