Bílastæði við Stjörnugróf

Bílastæði við Stjörnugróf

Hvað viltu láta gera? Setja ská bílastæði við N enda Stjörnugrófar Hvers vegna viltu láta gera það? Skortur er á bílastæðum í hverfinu. Bílastæði þarna gagnast íbúm jafnt sem gestum t.d. Víkings.

Points

Nei það er meira en nóg af bílastæðum í hverfinu. Frekar að gróðursetja runna og fallegan gróður þarna. Mörg bílastæði eru við Víkina sem standa yfirleitt tóm nema þegar leikir eru. Og allt í fína þó að það sé lagt í götunni rétt á meðan þeir standa yfir.

Nei takk! Þetta er eitt af þeim grænum svæðum sem þarf að fá að halda áfram að vera græn. Myndi mun frekar vilja leyfa þessum græna bletti að fá falleg tré til gróðursetningar, bekki til að tilla sér á og göngustíg.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Fjölgun bílastæða er stefnumál sem stöðugt er til umfjöllunar og úrvinnslu. Skipulagsferli hugmyndarinnar er of langt fyrir tímaramma verkefnisins sem gerir hana ótæka fyrir verkefnið. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information