Gangbraut í Bríetartúni, við Þórunnartún

Gangbraut í Bríetartúni, við Þórunnartún

Hvað viltu láta gera? Bæta við annarri gangbraut yfir Bríetartún, við Þórunnartún. Gangbrautin má gjarnan vera hraðahindrun líka. Hvers vegna viltu láta gera það? Gangbrautin myndi tengja gönguleiðina sem liggur í gegnum portið bakvið Bríetartún og Laugaveg við Þórunnartún og Borgartún. Þar að auki myndi hún auka aðgengi og öryggi gangandi vegfarenda. Hjólandi vegfarendur myndu einnig njóta góðs af þessu, þar sem kantsteinninn við gangstéttina við Bríetartún er hár.

Points

Það vantar gangbraut á móts við ibúðarhúsin og hotelin i Þórunnartúni.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin þín snýr að vinnu sem þegar er áformuð á næstu misserum og er þ.a.l. í öðru ferli. Hún er því ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information