Hvað viltu láta gera? Finna svæði í miðbænum þar sem hægt væri að hafa reglubundið yfir sumarið útitónleika þar sem flutt væri sígild (klassísk) tónlist - jafnvel sinfóníutónleikar. Jafnframt að fólk geti setið á stól og notið þess að hlusta. Fólk gæti þá greitt fyrir stólaleigu einhverja smáupphæð. Hvers vegna viltu láta gera það? Það yrði skemmtilegur menningarauki og myndi auka á fjölbreytni í tónlistarlífinu yfir sumartímann. Hef m.a. farið á svona tónleika í Bergen sem eru afar minnisstæðir.
Frábær hugmynd!
flott hugmynd!
Geggjuð/stórkostleg hugmynd/tillaga ..!!
Með yfirbyggingu
Falleg hugmynd og í anda þess að almenningur fái að njóta enn betur klassískrar tónlistar
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins. Viðburðir eru hins vegar góð hugmynd sem hægt væri að sækja um fyrir í Hverfissjóð Reykjavíkurborgar og/eða Sumarborginni, hægt er að nýta ýmis torg í miðbænum fyrir slíka viðburði. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation