Lýsing á göngustíg milli Norðlingaholts og Elliðaárdals

Lýsing á göngustíg milli Norðlingaholts og Elliðaárdals

Hvað viltu láta gera? Setja ljósastaura til að lýsa upp rúmlega 500m göngustíg sem tengir Norðlingaholt við Elliðaárdal. Kaflinn frá Vatnsveituvegi (við Dýraspítalann) að undirgöngum við Norðlingaholt (undir Breiðholtsbraut). Hvers vegna viltu láta gera það? Þetta er mjög fjölfarinn stígur og er aðaltenging Norðlingaholts við Elliðaárdalinn. Þetta er að stórum hluta inni í skógi og á veturna myndast oft hálka sem fólk sér illa í myrkri. Það er því nauðsynlegt að setja lýsingu til þess að tryggja öryggi gangandi vegfarenda og hjólafólks.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 – 2021. Heildarendurskoðun á stígatengingum við Breiðholtsbraut er í ferli og hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu í þá vinnu. Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information