Skipta um gervigras á sparkvelli við Árbæjarskóla

Skipta um gervigras á sparkvelli við Árbæjarskóla

Hvað viltu láta gera? Sparkvöllurinn við Árbæjarskóla er kominn til ára sinna og er í raun barn síns tíma. Grasið er orðið mjög illa farið og er í raun orðið þannig að slysahætta er veruleg. Hvers vegna viltu láta gera það? Völlurinn er svo gott sem ónothæfur stóran hluta ársins þar sem grasið verður líkara grænni steypu yfir veturinn. Þarna spila krakkar fótbolta, og aðra leiki, og þó svo að lítið hné og ökklar þolið undirlagið núna er ófyrirséður skaði að eiga sér stað. Víða um Höfuðborgarsvæðið eru sparkvellir með miklu mun betra undirlagi og því engin ástæða til þess að Árbærinn sé því undanskilinn.

Points

Þetta er mjög góð og mikilvæg hugmynd. Hefur verið til skoðunar um hríð hjá skólaráði Árbæjarskóla, sem hefur bent á að líklega var frá upphafi rangt undirlag lagt undir grasið. Það drenar ekki í bleytu og er hættulegt að spila á þegar frýs.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information