Vantar gönguljós

Vantar gönguljós

Hvað viltu láta gera? Það er lítill göngustígur fyrir aftan Fiskakvísl í Ártuninu sem mörg börn m.a nota á leið sinni til skóla og kvöldin. Þar er engin lýsing. Hvers vegna viltu láta gera það? Öryggisatriði og aukinn slysahætta vegna slakrar birtu á göngustíg.

Points

Almennt mætti yfirfara lýsingu á göngustígum í hverfinu. Það vantar klárlega betri lýsingu á þessum stíg. Einnig hefur lýsing á stígnum við hlið battavallarins við Ártúnsskóla verið óvirk í töluverðann tíma. Einnig er stígur frá aparóló að brekkunni með skíðalyftunni, sem er óupplýstur og mætti einnig bæta úr því

Það vantar tilfinnanlega lýsingu á göngustíg fyrir neðan Fiskakvísl og yfir í Bröndukvísl. Þarna er kolniðamyrkur og maður sér ekki fóta sinna skil. Af því stafar mikil hætta enda hafa trjárætur sums staðar lyft stéttinni og er því hætta á að hrasa. Þá er þetta mjög óþægilegt fyrir myrkfælna.

Það vantar tilfinnanlega lýsingu á þessum göngustíg. Þetta er langur stígur sem krakkar fara bæði snemma á morgnanna í skólann og á kvöldin heim af leikvellinum og það er kolniða myrkur og manni er illa við að barnið sitt labbi þarna eitt þarna um.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information