Gangbraut við Álftamýrarskóla

Gangbraut við Álftamýrarskóla

Hvað viltu láta gera? Setja gangbraut á þann stað sem er búið að teikna inn á myndina. Hvers vegna viltu láta gera það? Þetta er sá staður sem fólk (og börn) notar til að krossa götuna, í það minnsta þau sem eru á leið í suður átt. Önnur gangbraut er til staðar norðar í götunni en hún er ekki notuð af fólki á leið í þessa átt. Gangandi vegarendur eiga heldur ekki að þurfa að leggja á sig króka til að vera lögleg inn í hverfi. Sá sem setur þetta inn hefur líka séð leikskólahópa og hópa af frístundaheimilum leidda þarna yfir götuna - eðlilega þar sem þetta er bein leið. Þessi gata er botlangi, íbúðargata, skólagata, og engin ástæða til að vera að hafa vafamál um hver á réttinn þarna. Það á að vera skýrt að þetta sé gönguleið og gangandi vegfarendur séu í rétti.

Points

Auka öryggi

Fá örugga gönguleið yfir götu við skóla fyrir gangandi vegfarendur sem eru á þessum stað mikið til skólabörn.

Mætti fjölga gangbrautum og þrengingum í Reykjavík

Fleiri gangbrautir því betra.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information