Ljósastaurar í kringum rauðavatn

Ljósastaurar í kringum rauðavatn

Hvað viltu láta gera? setja ljósastaura allan hringinn í kringum rauðavatn Hvers vegna viltu láta gera það? Vegna þess að eftir myrkur þá sést ekkert þar

Points

Rauðavatnshringurinn er tiltölulega ósnert náttúra sem er ekki auðfundin svo stutt frá höfuðborgum og óþarfi að skapa meiri ljósamengun en þegar er til staðar í borginni. Hægt er að leyfa þessu svæði að nýtast fyrir bæði þá sem vilja halda náttúrulegu myrkri á sínum göngu- og hlaupaferðum... með því að þeir sem vilja ljós geta tekið vasaljós eða höfuðljós með sér... eða nýtt VEL upplýstann Elliðaárdalinn! Óþarfi að lýsa upp ALLT umhverfi í kringum borgina :/

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í ferli annars staðar innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í það ferli. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Hvað þarf fólk nauðsynlega að sjá norðan við Rauðavatnið? Þetta er ekki leið sem þjónar samgöngum og með sömu rökum ætti að lýsa allar gönguleiðir í landinu.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information