Vegur sem liggur meðfram Rauðavatni er illa ökufær. Hann er allur í djúpum holum sem þörf er á að bæta. Svæðið er fallegt en vegurinn að því er alveg ömurlegur. Ekkert hefur verið bætt í veginn í langan tíma. Úr þessu þarf að bæta.
Mikið er um að fólk komi þarna alls staðar að til að njóta útivistar og ganga þarna um svæðið og upp á Hádegisheiði. Þetta er kjörið útivistar svæði með göngustígum í allar áttir. Þetta er einnig vinsælt útivistar svæði fyrir hundafók því þarna er lausaganga hunda leyfð. Þetta er fallegt svæði í alla staði en aðkoman er afar slæm vægast sagt.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation