öryggismyndavélar

öryggismyndavélar

Hvað viltu láta gera? Setja upp myndavélar við báða innganga Grundarhverfis Hvers vegna viltu láta gera það? Til þess að auka eftirlit og öryggi í hverfinu

Points

Nauðsynlegt öryggi fyrir íbúa. Ljóslausir bílar sem aka um, fíkniefnasala upp við gáma .Hvoru tveggja i skjóli myrkurs.Eltihrella umferð, innbrot og fleira . Þetta verður bara að segjast. Þessu þarf að linna.Það er löngu tímabært. að fá eftirlits myndavélar.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Algjörlega nauðsynlegt,getur hjálpað gífurlega til sem sönnunargögn í allskonar málum t.d skemmdarverkum,slysum,innbrotum og fleira.

Þetta getur haft mikinn fælingarmátt og aukið öryggi mikið.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information