Grisja tré í holtinu fyrir neðan Hóla og Berg

Grisja tré í holtinu fyrir neðan Hóla og Berg

Hvað viltu láta gera? Grisja tré fyrir neðan Hóla og berg. Hvers vegna viltu láta gera það? Í holtinu fyrir neðan þessi hverfi var plantað trjám fyrir áratugum sem hefur ekkert verið sinnt síðan þá. Þessi tré eru orðin mjög há og mjög þétt og gera það að verkum að lóðir sem seldar voru sem útsýnislóðir eru það ekki lengur.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Það eru líklega 40 ár frá gróðursetningu í þetta fallega svæði. Alveg komið að því að snyrta eitthvað. Gróðursett meira af kappi en forsjá. Í sumum tilvikum vaxa þrjár tegundir upp af sömu þúfunni. Mætti velja úr. Á þessu svæði er líka mikið af fallegu holtagrjóti sem ekki lengur fær að njóta sín. Það er líka að koma í þetta illgresi og hálfdauður runnagróður sem eykur ELDHÆTTU fyrir nærliggjandi hús.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information