Göngustígur frá Norðlingaholti í verslunarkjarna í Hvörfum

Göngustígur frá Norðlingaholti í verslunarkjarna í Hvörfum

Hvað viltu láta gera? Leggja göngustíg frá Norðlingaholti að Ögurhvarfi AUSTAN megin við Breiðholtsbraut Hvers vegna viltu láta gera það? Íbúar í Norðlingaholti þurfa að sækja alla verslun og þjónustu út fyrir hverfið. Í dag þarf að fara 2x yfir/undir Breiðholtsbrautina, yfir gatnamót að Víðidal (þar sem umferð kemur í 3 áttum og umferðarhraði er mikill) og síðan yfir brú yfir Elliðaár sem er að hruni komin og rampur allt of brattur. Gönguleið austan megin með nýrri brú myndi auðvelda fólki mikið að ganga og hjóla þessa leið en þjónusta á þessu svæði í Hvörfunum hefur aukist mikið undanfarin ár.

Points

Mikil þörf á þessari framkvæmd og auðveldar ferðir gangandi og hjólandi milli hverfanna.

Sorgleg staðreynd að hafa ekki neina verslun (tel ekki Olís með) í hverfinu

Mjög þarft. Vonandi kemst þessi hugmynd áfram.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins Hverfið mitt og er hugmyndin í skoðun annars staðar innan borgarkerfisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information