Opna gōmlu kvennaklefana í Sundhōll Reykjavíkur

Opna gōmlu kvennaklefana í Sundhōll Reykjavíkur

Hvað viltu láta gera? Framkvæma viðhald og opna sem fyrst gōmlu kvennaklefana í Sundhōllinni. Það er til skammar að konur í borginni fái ekki að upplifa og njóta gōmlu kvennaklefanna í sundhōllinni. Þarna eru sōguleg verðmæti sem fólk þarf að fà að upplifa og njóta en ekki vera á bak við làs og slá . Koma nú og opnum þessi menningarverðmæti fyrir borgurunum Hvers vegna viltu láta gera það? Vegna þess að fólk verð að fá að skynja, sjá og upplifa einstakan byggingarstíl og umhverfi á eigin blautu skinni

Points

Algjörlega - að maður tali nú ekki um það að nýju klefarýmið er alltof lítið, og að konur þurfa að ganga langan spöl í gegnum alls konar veður til að komast að innilaug og heitu pottunum uppi!

Þú gætir líka bara notað nýju klefana... Synd að hætta að nota þá bara til þess að geta farið í gamlann, sveittann klefa.

Ég vissi ekki að það voru til gamlir kvennaklefar! Algjör synd að það sé ekki verið að nota það sem til er, sérstaklega sem er myningararfur!

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem ekki er um að ræða eiginlega nýframkvæmd ásamt því að umrætt verkefni er nú þegar í ferli annars staðar í borgarkerfinu. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information