Hringtorg á gatnamót Breiðhöfða og Straums

Hringtorg á gatnamót Breiðhöfða og Straums

Hvað viltu láta gera? Hringtorg á gatnamót Breiðhöfða og Straums Hvers vegna viltu láta gera það? Aðgangur fyrir umferð frá Breiðhöfða inn á Straum til austurs getur reynst torsóttur. Það á einnig við um umferð frá straumi í austur og inn á Breiðhöfða þó það sé ekki eins mikið vandamál. Telur undirritaður að hringtorg myndi færa þetta í betra horf sérstaklega á háannatímum.

Points

Afar mikilvægt að breyta þessum gatnamótum í hringtorg. Umferð hefur aukist þarna og á eftir að aukast enn meir. Á annatímum er erfitt fyrir þá sem koma undan brúnni að komast upp Straum og þá er bílaröðin fyrir aftan niður að Bíldshöfða. Liggur oft við árekstrum þegar menn reyna að freysta þess að komast leiðar sinnar út á Straum. Það er nóg pláss fyrir lítið hringtorg á þessum stað.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 – 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins og verkefnið er háð samþykki skipulags- og samgönguráðs. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information