Gosbrunn á Hjartatorgið

Gosbrunn á Hjartatorgið

Hvað viltu láta gera? Setja gosbrunn á hjartatorgið Hvers vegna viltu láta gera það? Vegna þess að öll góð torg eiga að hafa gosbrunn eða annan miðpunkt sem trekkir að. Hjartagarðurinn er steindautt torg en myndi með fallegum gosbrunni trekkja að mannlíf og skapa menningu útfrá þeirri frábæru dýnamík og stemmingu sem gosbrunnur færir torginu.

Points

engin

Sé fyrir mér eitthvað svona: https://i.pinimg.com/originals/ce/18/1f/ce181f9838f86c1a63121c1224c3b0e5.jpg

Fegurð, laðar fólk að, má koma með hugmynd með þessu, hægt að hafa þarna útidansgólf og þá skemmir ekki gosbrunnur

Það hefur alltaf vantar líf á þetta annars skjólgóða og sólríka torg og gosbrunnur og veitingastaðir í kring er einmitt það sem myndi draga fólk að

Þetta stóð alltaf til og lagnir eru þegar fyrir hendi. Hjartatorg verður ekki fullkomnað fyrr en það fær einhverskonar miðju sem laðar fólk að frá Laugavegi.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki á borgarlandi. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til lóðareigenda. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information