Ævintýra og útivitarsvæði við Rauðavatn

Ævintýra og útivitarsvæði við Rauðavatn

Hvað viltu láta gera? Gera útivistar og ævintýrasvæði við Rauðavatn. Nú þegar skátarnir eru á leið upp við Rauðavatn þá er um að gera að gera meira úr þessu svæði. Tilvalið að starfrækja kajakbáta, garð eins og Adrenalíngarðinn, hreinsa sandinn og jafnvel veita heitu vatni út í vatnið á sumrin, koma upp grillaðstöðu og skjólhúsum. Hvers vegna viltu láta gera það? Gera þetta svæði að geggjuðu útivistarsvæði

Points

Algerlega frábær hugmynd, koma upp strandmenningu í góðu veðri og einhverja atburði í nágrenni, t.d hafa frisbígolf, fótboltanlak í sandinum, strandblak. Hafa lðlíka annað prógramm á haustin, skauta, gönguskíði fyrir krakka, kynning. Eiga skíði til að lána svipað og skólar hafa komið sér upp. Hafa lifandi síðu um viðburði og hvað er í gangi þar. Sá líka erlendis líkamsræktartæki sem eru föst við jörðu og þar sem unnið er með eigin þyngd, bekkpressa, innan-utanlærisvöðva, hnébeygga, og margt fl.

Styð þessa tillögu, ég sé fyrir mér svipað svæði og er uppi á Gufunesi, fjölbreytt leiktæki sem að falla vel inn í umhverfið.

Gerð var úttekt á þessu svæði fyrir nokkru sem til er hjá Reykjavíkurborg og unninn af ungmennaráði Árbæjar og fór fyrir Borgarráði og skóla- og frístundaráði. Hugmynd ungmenna er svipuð, ekki malbik og hafa svæðið sem náttúrulegast. Niðurstöður líffræðinga er að ekki má veita heiti vatni í Rauðavatn vegna þess lífríkis má dvelur þar í gróðrinum á vatninu. En hugmyndin er frábær!

Spennandi hugmynd, þetta svæði gæti vel verið líflegra og gaman að ýta undir útivist og samveru

Er ekki Rauðavatn fullt af blóðsugum https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1520649/

Góð tillaga, spennandi staðsetning sem er tilvalin í útiævintýrasvæði!

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var ein af efstu fimm og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Næsta skref í verkefninu er að velja aðrar þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur, Til hamingju hugmyndin þín hlaut kosningu í Hverfið mitt 2021. Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022, niðurstöður kosninga má sjá á www.Hverfidmitt.is. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is/. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information