Göngu og hjólabrú yfir Elliðaár við Dimmu / Breiðholtsbraut

Göngu og hjólabrú yfir Elliðaár við Dimmu / Breiðholtsbraut

Hvað viltu láta gera? Byggja göngu í hjólabrú yfir Elliðaár við Dimmu við hliðiná Breiðholtsbraut. Núverandi brú er ekki hönnuð fyrir hvorki hjólandi né gangi þar sem þetta eru gömul lagnabrú fyrir vatn- eða hitaveitu. Mjög erfitt getur verið fyrir fólk með vagna að komast yfir brúnna sem og gangi og hjólandi á veturna. Hvers vegna viltu láta gera það?

Points

Samatillaga í Árbæjar hópnum https://betri-hverfi-2015.betrireykjavik.is/post/28544

Já það er þörf á þessu.

Það er löngu komin tími til að endurnýja þessa brú, þrepin lítil og þröng, gera nýja brú breiðari með betra aðgengi fyrir alla

Mál til komið!!

Hættulegt fyrir eldra fólk á reiðhjóli að teyma hjólið upp og niður lélegar töppur. Eiginkona min er enn að glíma við meiðsli eftir að hafa misstigið sig þarna.

Stórhættulegt að fara með barnavagn/kerru þarna yfir eins og þetta er núna!

Sammála -löngu kominn tími á endurnýjun.

Löngu orðið tímabært að gera nýja brú þarna. Mikil umferð sem fer þarna um, gangandi og hjólandi.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í ferli annars staðar innan borgarkerfisins. Það liggur fyrir vilji til að framkvæma þetta og er í undirbúningi ásamt því að þetta er utan fjárheimildar verkefnisins Hverfið mitt. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information