Snjóbræðsla í gangstíg

Snjóbræðsla í gangstíg

Hvað viltu láta gera? Setja snjóbræðslu í gangstíg á milli Eyktarás og Deildarás Hvers vegna viltu láta gera það? Stígurinn getur orðið mjög hátt og er tiltölulega brattur. Af sporum utan við stíg er hægt að sjá að ég og fleiri hafa átt í erfiðleikum með að fóta sig í þessum bratta þegar snjór hefur þjappast og breyst í klaka þegar þiðnar.

Points

Fljúgandi hált alveg niður að göngustíg fyrir neðan Deildarás.

Tek heilshugar undir þessa hugmynd. Bræðslan mætti líka ná niður að göngustígnum fyrir ofan sundlaugina og blakvöllinn. Þetta er stuttur spotti í viðbót frá Deildarásnum en ansi brattur. Hann verður fljúgandi háll á veturna og stundum nánast ómögulegt að fóta sig á honum. Ég hef komist í hann krappann á þessum stað þegar snjóföl var yfir klakanum.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information