Hjólastígar

Hjólastígar

Hvað viltu láta gera? Fjölga hjólastígum og/eða bæta þá stíga sem eru nú þegar til fyrir hjólandi umferð. Hvers vegna viltu láta gera það? Gangstéttir eru núna fyrir hjólandi fólk og gangandi fólk. Þær eru víða illa farnar og sprungnar, samskeyti eru há og gróf og er orsök þess að dekk springa hjá hjólreiðafólki og að hjólin fari almennt illa. Nú eru margir sem nýta sér rafmagnshjól og rafmagnshlaupahjól og ég tel að þessi farartæki þurfi á sér stíg að halda, bæði til að draga úr slysahættu sem og til að gera þennan græna samgöngumáta að raunhæfum kosti fyrir fleiri.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem uppbygging hjólreiðastíga er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Uppbygging hjólreiðastíga er í undirbúningi og verður framkvæmd í áföngum á næstu árum. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í þá vinnu hjá samgöngudeild umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information