Gangstétt við strætóskýli

Gangstétt við strætóskýli

Hvað viltu láta gera? Þegar keyrt er inn Hraunbæinn frá Bæjarhálsi í átt að Rofabæ er biðskýli á hægri hönd. Þar endar gangstéttin skyndilega (sjá mynd). Það þyrfti að klára hana og láta gangstéttina enn fremur ná fyrir hornið og alla leið að Höfðabakkabrúnni. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er nauðsynlegt að gangandi vegfarendur geti komist ferða sinna á gangstéttum, en utan þeirra er stundum blautt og forugt.

Points

Væri ekki sniðugra að endurvekja þá göngustíga sem voru fjarlægðir þegar nýja húsið á horni Höfðabakka og Bæjarháls var byggt? Mun betra fyrir gangandi umferð að nýta þá stíga sem eru til en að byggja nýja gangstétt alveg við hlið mestu umferðargötu hverfisins.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Svæðið sem um ræðir er í uppbyggingu og/eða breytingar fyrirhugaðar á komandi árum og því ekki tímabært að kjósa um að svo stöddu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu inn í það ferli. Áætlað er að koma fyrir stíg meðfram Höfðabakkanum sem nýtist til að komast sömu leið og umræðir í hugmyndinni. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information