Sorpmál

Sorpmál

Hvað viltu láta gera? Setja stóra ruslagáma í Stjörnubíóportið sem koma í staðinn fyrir ruslatunnur, þ.e. í bakgarði Grettisgötu, Barónsstígs, Laugavegs og Snorrabrautar. Hvers vegna viltu láta gera það? Eins og staðan er í dag erum yfir 90 ruslatunnur í portinu sem eru á lóðum húsanna og það er mjög erfitt aðgengi fyrir sorphirðumenn á sumum lóðunum. Það eru of fáar tunnur við sum húsin og ruslið flæðir um allt. Í mínu húsi eru 3 íbúðir og við borgum fyrir 7 runnur, 1 plast, 2 pappír og 4 fyrir almennt sorp. Nágrannar henda oft í okkar tunnur og það kemur oft fyrir að sorphirðumenn skila ekki tunnunum aftur á okkar lóð heldur eru þær skilda eftir einhversstaðar. Núna eru t.d. 3 stútfullar tunnur á okkar lóð og hinar tunnurnar okkar á víð og dreif á öðrum lóðum. Núverandi kerfi gengur einfaldlega ekki upp.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information