Hvað viltu láta gera? www.m22.is - Undirskriftasöfnun er í gangi gegn breytingum á aðalskipulagi. Að nýta þetta friðsæla og fallega útivistarsvæði undir iðnaðarhverfi er léleg nýting á verðmætum útsýnislóðum, sólríkum suðurhlíðum eins og þær voru auglýstar á sínum tíma. Hvers vegna viltu láta gera það? Skuldbindingar borgarinnar gagnvart íbúum eru fólgnar í að viðhalda núverandi skipulagi. Þá er borgin skuldbundin íþróttafélaginu Fram um að hér sé nægilega stórt samfélag íbúa til að standa að baki öflugu íþrótta- og æskulýðsstarfi. Það er ótækt og í algjöru ósamræmi við umhverfið og náttúruna í nágrenninu að hafa þarna iðnaðarhverfi, fá svæði innan borgarmarkanna henta betur undir íbúabyggð en þessar sólsælu suðurhlíðar.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem um er að ræða skipulagsskylt verkefni sem samræmist ekki reglum Hverfið mitt. Skipulagsferill hugmyndarinnar er of langur fyrir tímaramma Hverfið mitt. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
Gríðarlega mikilvægt að tryggja íbúðabyggð á m22
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation