Göngu- og hjólastíg að Úlfarsfelli frá Staðahverfi

Göngu- og hjólastíg að Úlfarsfelli frá Staðahverfi

Hvað viltu láta gera? Hefja samstarf við Mosfellsbæ og Vegagerðina um gerð göngu- og hjólastígs frá Staðahverfi að Úlfarsfelli með undirgöngum undir Vesturlandsveg. Hvers vegna viltu láta gera það? Úlfarsfell er vinsælt útivistarsvæði sem er hluti af græna treflinum. Eins og málin eru í dag er erfitt að komast þangað gangandi eða hjólandi frá Grafarvogi/Staðahverfi. Umferðin á Vesturlandsvegi er hættuleg en með stíg frá Staðahverfi og undir Vesturlandsveg mætti bæta þetta aðgengi til muna og auka útivistarmöguleika án þess að þurfa að nota einkabílinn til að komast með öruggum hætti á svæðið.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Um er að ræða þjóðveg í þéttbýli og breytingar því á forræði Vegagerðarinnar sem er veghaldari þjóðvega. Vegagerðin og Reykjavíkurborg eiga farsælt samstarf um úrbætur á þjóðvegum og verður tillögunni komið áfram til Vegagerðarinnar og skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Fer mikið um á hjóli og það vantar frekari hjólastíga að Úlfarsfelli þarf niður að Bauhaus til að komast í Úlfarsfelli

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information