Gróðurhúsakaffihús í Fossvogsdal

Gróðurhúsakaffihús í Fossvogsdal

Hvað viltu láta gera? Hvernig væri að nýta dalinn í gróðurhúsa hverfiskaffihús. Barnvænt með úti-leiksvæði, grasagarð etc. Gróðurhús þurfa ekki alltaf einungis að hýsa plöntur. Tilvalið í kringum gróðrastöðina Mörk. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er svo mikill skortur á kaffihúsum í úthverfum Rvk. Það þarf einnig ávallt að keyra langar vegalengdir á sumrin í leit að barnvænu kaffihúsi þar sem krakkar geti hlaupið að leik. Þegar fallegum umhverfisvænum kaffihúsum fjölgar í úthverfum, minnkar það kolefnisspor einstaklingsins og mengun.

Points

Barnvænt með úti-leiksvæði, grasagarð etc. Gróðurhús þurfa ekki alltaf einungis að hýsa plöntur. Tilvalið í kringum gróðrastöðina Mörk. Vantar kaffihús á þetta svæði.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information