Undirgöng eða brú yfir/undir Bústaðarveg frá Litlu hlíð

Undirgöng eða brú yfir/undir Bústaðarveg frá Litlu hlíð

Hvað viltu láta gera? Setja undirgöng eða göngu-hjólabrú undir/yfir Bústaðarveg frá Litlu hlíð. Hvers vegna viltu láta gera það? Umferðaþungi á Bústaðarvegi er gríðarlegur. Mikil umferð gangandi og hjólandi er á þessu svæði. Nú er verið að leggja glæsilegan göngu- og hjólastíg og undirgöng undir Litlu hlíð. En ekki gert ráð fyrir tengingu yfir/undir Bústaðarveg í sömu framkvæmd, sem er miður. Tenging þarna yfir eða undir Bústaðarveg við Litlu hlíð myndi bæta aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda yfir í útivistarsvæðið í Öskjuhlíð sem er mikið notað, einnig Perluna, Kirkjugarðana, HR, Nauthólsvík, strætóskýlið við Perluna, Mjölni og fl.

Points

Nei, frekar endurbætt gönguljós. Bílar eiga að víkja fyrir vegfarendum frekar en að gera örðugra fyrir .á sem eldri eru að komast yfir götur.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Um er að ræða þjóðveg í þéttbýli og breytingar því á forræði Vegagerðarinnar sem er veghaldari þjóðvega. Vegagerðin og Reykjavíkurborg eiga farsælt samstarf um úrbætur á þjóðvegum og verður tillögunni komið áfram til Vegagerðarinnar og skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information