Hreyfing í stað óþarfrar bensínstöðvar

Hreyfing í stað óþarfrar bensínstöðvar

Hvað viltu láta gera? Fjarlægja bensínstöð N1 og bílaþvottastöð við Skógarsel og setja þar "hreyfivöll og parkour svæði Hvers vegna viltu láta gera það? Bætum aðstöðu fyrir hreyfingu og útiveru eldri borgara og allra annarra sem vilja hreyfa sig. Setjum upp "hreyfigarð" með þrektækjum, parkour svæði og æfingasvæði fyrir skokkara. Þetta væri tilvalin viðbót við hugmyndina um göngu og skokkbrautir um hverfið og Elliðaárdalinn. Þarna getur fólk á öllum aldri komið saman og hreyft sig ásamt því að hitta aðra sem eru í sömu erindum. Svona aðstaða á þessum stað er sýnileg stórum hópi sem þar með hvetur til notkunar

Points

Bensínstöðin er ekki óþörf. Ef hún væri óþörf þá væri N1 hætt rekstri þar, vegna lágra sölutalna.

á sama tíma og rafbílum fjölgar hratt er full ástæða til að fækka bensínstöðvum. Það eru tvær aðrar í mjóddinni og svo líka ofar í brekkunni. Bensínstöðvar eru til að mæta þörf notenda en ekki rekstraraðila. Núverandi fjöldi bensínstöðva í hverfinu er óþarfur - stór hluti íbúa sem notar slíkt fyllir á sína bíla annarsstaðar og hefur fjölmörg tækifæri til þess á leið í og úr vinnu.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information