Grenndargám fyrir málma v/ Kjarvalsstaði

Grenndargám fyrir málma v/ Kjarvalsstaði

Hvað viltu láta gera? Ég vil láta setja grenndargám fyrir málma við Kjarvalsstaði. Hvers vegna viltu láta gera það? Af því að mér finnst það hentugri leið til að endurnýta málmana í stað þess að skilja þá eftir lausa í heimilistunnunni. Á venjulegu heimili er fullt af afar smáum málmum, t.d. krukkulok og álþinnurnar sem loka skyrdollum/rjómaostum o.fl., sem mér þykir ótrúlegt að Herkúles, sorpvélin, nái frá ruslinu sínu með seglinum sínum. Einnig hef ég heyrt að sorpvélin nái ekki álinu. Þess vegna langar mig frekar til að safna þessu saman og setja svo í gám í göngufæri. Kjarvalsstaðir er ákveðinn miðpunktur þessa svæðis og þar sem það eru nú þegar grenndargámar á svæðinu ætti að vera lítið mál að bæta við einum fyrir málm. Einnig ef skoðað er sorpa.is að þá sér maður að það eru einungis 8 málmgámar í allri Reykjavík, þar af 7 í 110 Reykjavík. Ég held það sé kominn tími á einn miðsvæðis.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin þín snýr að vinnu sem þegar er áformuð á næstu misserum og er þ.a.l. í öðru ferli. Hún er því ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information