Umgjörð um viðburðasvæði við Grænuhlíðarróló

Umgjörð um viðburðasvæði við Grænuhlíðarróló

Hvað viltu láta gera? Útbúa rafmagnskassa og önnur innviði fyrir litla viðburði á svæðinu við Grænuhlíðarróló og almennt hafa skipulag svæðisins þannig að það þjóni nærsamfélaginu. Hvers vegna viltu láta gera það? Svæðið er gríðarlega hentugt og liggur vel sem viðburðasvæði fyrir Hlíðarnar sunnan Miklubrautar. Íbúar eru sammála um að þar sé mun notalegra að koma saman en á Klambratúni, þar sem er mun meiri berangur og víðátta og langt að fara. Svæðið er skjólgott og heldur vel utan um litlar samkomur upp í 200 manns og göngustígurinn frá Hamrahlíð yfir í Grænuhlíð myndar frábært "Skástræti" fyrir hvers kyns markaðsstarf, lítil jólaþorp, hverfisviðburði og fleira sem þjappar saman samfélaginu. Að útbúa innviði fyrir viðburðasvæði á þessu miðlæga svæði væri gríðarleg lyftistöng fyrir sjálfsprottið félagslíf í þorpinu.

Points

Yrði afar ónæðissamt fyrir íbúa í þeim húsum sem snúa að þessu svæði. Húsin eru of nálægt. Svefnherbergi snúa gjarnan inn í svæðið. Hverfisviðburðir með fjölda manns gætu leitt til hávaða fram eftir kvöldum. Hópamyndanir á öllum tímum sólarhringsins. Þetta þarf að hugsa mjög vel og er varla í boði fyrir þá sem búa næst svæðinu.

Frábær hugmynd sem gæti komið vel út sé vandað til verka. Svæðið er inni í miðri íbúabyggð og því þyrfti að taka tillit til þess.

Það þarf að vanda mjög til verka við útfærslu á þessari hugmynd, sem er góð. Við sem búum við þetta svæði verðum að vera með í ráðum.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og verður ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Miðborgar og Hlíða á fimmtudaginn næstkomandi þann 20. maí milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 20 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/950529515775273/. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Þín hugmynd var því miður ekki valin áfram og verður því ekki á kjörseðlinum að þessu sinni. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið má finna hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information