Ísbúð í Seljahverfið

Ísbúð í Seljahverfið

Hvað viltu láta gera? Ég vil láta gera ísbúð í Seljahverfið Hvers vegna viltu láta gera það? Til þess að fólk fari meira að sækjast í Seljahverfið vegna þess að hér eru engin bakarí, ísbúðir eða neitt því líkt. En einnig til þess að íbúar Seljahverfis þurfi ekki að ferðast eins langt til að kaupa sér ís. Ég veit að flestir íbúar væru vel til í þetta.

Points

Findu hentugt húsnæði og opnaðu ísbúð sjálf. Ástæðan fyrir að engin ísbúð er (lengur) í Seljahverfi er að þær hættu rekstri... það voru ekki nægar tekjur til að halda rekstri áfram. Fólk fór ekki að versla hjá þeim...

Ekki hlutverk borgarinnar

Ég er alveg með þessu en málið er að Kjörís ísbúð var þar sem Dóminós er núna. Á stæðan fyrir því að hun hætti var ekki vegna þess að lítið var að gera. Ástæðan var öryggi stúlknanna sem unnu þarna var sífelt ógnað af viðskiptavinum hverfisbarsins. Eigandinn sá sig knúinn til að hætta með þetta útibú þar sem hann gat ekki tryggt öryggi starfsstúlknanna. Þyrfti bara að vera á öðru svæði, fjær bar.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information