Samkeppni um yfirbyggingu á Hafnartorgi

Samkeppni um yfirbyggingu á Hafnartorgi

Hvað viltu láta gera? Byggja þak og skjólveggi yfir Hafnartorg. Hvers vegna viltu láta gera það? Þannig geta miðborgarbúar og fleiri notið þess að versla í miðborginni og líklegra að það opni kaffi og veitingahús á svæðinu sem er grundvallar atriði þegar farið er að versla. Svæðið er þannig að mestan hluta ársins er þarna vindur, dimmt og kalt, það mun ekki verða til að laða að fólk, en ef því er öfugt farið gæti þetta orðið dásamlegt svæði með lífi allt árið. Það þarf að passa að þetta verði ekki eins og Mjódd eða Eiðistorg og þess vegna þarf að efna til samkeppni um útlitið.

Points

Fullkomið fyrir íslenskt veður ! loksins getur maður verið "úti" án þess að fá vind og rigningu á sig, getur verið eins stemnig og er oft erlendis. Þar sem maður getur setið með teppi undir hitalampa og fengið sér einn bjór á veturna án þess að þurfa hlaupa inn vegna vinds eða rigningar

Flott hugmynd, kanski hægt að hanna þetta með færanlegu þaki fyrir góðviðrisdaganna. Passa að forðast Mjóddar útgáfuna

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til lóðareigenda. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information