Strætóskýli við hringtorg hjá Jörfa og Hofsgrund.

Strætóskýli við hringtorg hjá Jörfa og Hofsgrund.

Hvað viltu láta gera? Strætóskýli við hringtorg hjá Jörfa og Hofsgrund. Kjalarnes er rokrassgat. Börn og gamalmenni sem og fullfrískt fólk þarf að ganga upp vindinn í allsskonar veðráttu til að komast að lélegustu samgönguþjónustu reykjavíkur. Hvers vegna viltu láta gera það? Til þess að virkja notkun hverfisins og tengingu við umheiminn.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefnið er í öðru ferli í borgarkerfinu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til Strætó. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Það er löngu kominn tími til, að færa biðstöð strætó aftur inn að hringtorginu. Þannig myndu íbúar hér fá þá þjónustu sem þeim ber., og eru mannúðlegar. Núverandi aðstæður hafa aldrei verið boðlegar.

Ef eitthvað er þá gæti þetta orðið til að auka notkun fólks á Strætó. Í leiðindaveðrum að vetri er þetta óþarflega löng ferð uppímóti til að ná Strætó sem maður veit ekki hvort kemur á réttum tíma eins og vill verða.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information