Tæki á leikvöll

Tæki á leikvöll

Hvað viltu láta gera? Bæta við rennibrautum á hól. Bæta við rólum. frisbígolf hring umhverfis leikvöll. Afgirt 2skipt hundasvæði við hlið leikvallar. Hvers vegna viltu láta gera það? Vegna þess að ég vil auka notkunarmöguleika framyfir útlit. Sem og er mikið um hundafólk á kjalarnesi sem á erfitt með að samtvinna barnaleik og hundaleik. Tvær flugur má slá í einu höggi með öryggi í fyrrarúmi. Bundnir hundar eru mun líklegri til að valda skaða á tækjum og öðrum.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Til stendur að koma upp hundagerði á Kjalarnesi en staðsetning þess bíður eftir ákvörðun íbúaráðs Kjalarness. Einnig er ekki pláss á umræddu leiksvæði fyrir fleiri leiktæki. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information