Lokun í Breiðagerði við Breiðagerðisskóla

Lokun í Breiðagerði við Breiðagerðisskóla

Hvað viltu láta gera? Breiðagerði verði lokað við Breiðagerðisskóla þannig að aðkoma að skólanum verði frá Grensásvegi annars vegar og Sogavegi hinsvegar en lokað fyrir gegnumakstur. Í staðinn verði aðrar þrengingar og hraðahindranir fjarlægðar. Framkvæmdin gæti verið svipuð og annars staðar þar sem þetta hefur verið gert, t.d. í Bólstaðarhlíð á móts við leikskólann Stakkaborg þar sem þetta hefur gefist mjög vel. Lokunin gæti verið t.d. við gangbrautina þannig að áfram væri gott aðgengi að skólanum bæði frá Sogavegi og Grensásvegi auk hliðargatna. Hvers vegna viltu láta gera það? Aukið öryggi fyrir börn á leið í og úr skólanum og almennt við götuna. Akstur gegnum hverfið milli Grensásvegar og Sogavegar eftir Breiðagerði væri úr sögunni. Núna er gatan tengileið gegnum íbúðarhverfi millli Grensásvegar og Sogavegar. Hraðahindranir og þrengingar hafa lítil áhrif á þá sem vilja stytta sér leið þarna. Breiðagerðið yrði fallegri og vistvænni gata með ýmsa þróunarmöguleika s.s. að setja í hana stóra blómapotta, tré, etc. Blómapotta mætti einnig nota til að hægja á umferð ef þörf krefði. Eini sjáanlegi ókosturinn væri að mögulega þyrftu einhverjir að gera minniháttar breytingar á ferðavenjum sínum.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information