ruslatunnur í borgarhverfi

ruslatunnur í borgarhverfi

Hvað viltu láta gera? Bæta við fleirum ruslatunnum og skipta út gömlu og eyðilöggðu ruslatunnunum Hvers vegna viltu láta gera það? Það er mjög mikill skortur á ruslatunnum í borgahverfi. Maður fer í göngutúr og þarf að henda rusli og maður þarf þá að ganga í kannski 10-15 mínútur til að finna eitthverja ruslatunnu. Það eru líka nokkrar af þessum gömlu ruslatunnum sem búið er að sparka botninn af og því ekki hægt að henda rusli í þær. Það er alltaf verið að hvarta yfir rusli í hverfinu en ástæðan er að það eru bara einfaldlega lítið sem engar ruslatunnur.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og verður ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Grafarvogs á mánudaginn næstkomandi þann 22. mars milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/232474641944391. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

mætti koma með ruslatunnur i öll hverfi hér i Grafarvogi og víðar . Vanar alls staðar .

Vantar ruslatunnur alls staðar hér i Hverfið . SKIPTA ÚT OG TAKA LJÓTU TUNNURNAR I BURTU OG MUNA SVO AÐ LOSA TUNNUR REGLULEGA. ÞAÐ VANTAR LIKA BEKKI ALLS STAÐAR OG SVO ÞARF AÐ SANDA OG SALTA REGLULEGA . HLJÓTIÐ AÐ GETA GERT ÞAÐ .. MINNIÐ SVO SALTAUSTUR Á GÖTURNAR.

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Þín hugmynd var því miður ekki valin áfram og verður því ekki á kjörseðlinum að þessu sinni. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið má finna hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information