Andlega setrið fyrir unga fólkið

Andlega setrið fyrir unga fólkið

Hvað viltu láta gera? Setja á fót setur fyrir andlega fræðslu og stuðning, s.s. hugleiðslu, núvitund, heilun og fræðslu af ýmsum toga sérstaklega fyrir ungt fólk, með það í huga að auka persónulegan vöxt og þroska. Fyrirmyndir má sækja erlendis til dæmis til Indlands, heartfulness.org sem er einkum hugsað fyrir ungt fólk til að ná meiri þroska og árangri í lífinu. Þetta mætti líka koma inn í skólana á veturna. Hvers vegna viltu láta gera það? Hjálpa fólki að ná áttum og lifa hamingjusamara lífi. Þessu er einkum beint að ungu fólki sem á mjög undir högg að sækja í þjóðfélaginu.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Frábær hugmynd mæli með þessu

Öll viljum við vera hamingjusöm og ná árangri í lífinu og við getum svo sannarlega hjálpað ungu fólki til aukins árangurs og þroska.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information