skautasvell á Reykjavíkurtjörn

skautasvell á Reykjavíkurtjörn

Hvað viltu láta gera? Skipuleggja skautasvell á hluta tjarnarinnar t.d. við bakka Tjarnargötu. Halda úti sæmilegri lýsingu, halda svelli sléttu, afmarka flöt, leika skemmtilega tónlist, aðstöðu til að setja a sig skauta o.s.frv. Hvers vegna viltu láta gera það? Ódýr, holl og fjölskylduvæn hreyfing. Eykur umferð um miðbæinn. Mikil hefð fyrir að skauta a tjörninni.

Points

Svo rosalega marga búið að dreyma um þetta svo rosalega lengi, enda borðleggjandi, hver er fyrirstaðan, útvista skautaleigu, kakósjoppu og þjónustu, hvað er málið? afhverju er ekki lööööngu búið að gera þetta hér í landi frosts og funa, ótrúlega órómantískt, en má bæta fyrir það með því að einfaldlega gera það.

Afsakið, þarf ekki að færa þessa hugmynd pent á miðbæinn?

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information