Flotsauna í nauthólsvík

Flotsauna í nauthólsvík

Hvað viltu láta gera? Smíða litla þurrgufu á einn flotprammann í Nauthólsvík. Annar flotpramminn virðist vera í takmarkaðri notkun og væri því tilvalinn sem undirstaða fyrir saunu og ætti þannig að halda tilkostnaði niðri (sjá mynd). Flotpramminn flyti í passlegri fjarlægð frá landi. Hann myndi hýsa saunu og hvíldarpall til þess að hvíla sig milli sundspretta eða liggja í sólbaði. Hugsanlega væri hægt að klifra upp á þak og stökkva út í. Yfir vetrartímann væri svo hægt geyma flekann á sama stað og flotprammarnir eru geymdir í dag. Hef stundað sjóböð í nokkur ár og lengi dreymt um saunu í Nauthólsvík. Það virðist vera áhugi fyrir þessu og fjöldamörg dæmi um þetta út í heimi. Skemmtileg og öðruvísi hugmynd sem myndi vekja eftirtekt. Hvers vegna viltu láta gera það? Sniðug leið til þess að fá saunu í Nauthólsvíkina með litlum tilkostnaði. Flotsaunan myndi vekja athygli og gæti orðið skemmtileg viðbót við aðstöðuna í Nauthólsvík auk þess vantar þægilegan viðarklæddan flotpramma sem gott er að hvíla sig á milli sundspretta.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til ÍTR og/eða viðkomandi sundlaugar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information