Alltaf logn í Grundarhverfi

Alltaf logn í Grundarhverfi

Hvað viltu láta gera? Rækta/efla trjágróður í Grundarhverfi. Rækta til skjólbelti sem brýtur niður A-NA áttina. Það er minnst útsýni til austurs og því minnstu að tapa með háum skjólbeltum. Það mætti setja niður belti vestan við fótboltavöll, vestan við útvistasvæðið, alla norðurlinuna og gera útivistarsvæðið að risarjóðri. Þetta tæki nokkur ár en við sjáum víða há og myndarleg tré í hverfinu svo ekki sé talað um skóginn norðan og neðan hverfis. Þetta myndi auka lífsgæði til muna í Grundarhverfi með lágmarkstjóni á útsýni til hafs og sólar (sólarlags). Þetta kostar ekki mikið sé þetta hugsað sem td. fimm ára verkefni. Og börnin geta leikið sér meira og oftar úti og notið þeirra veðrabreytinga sem aukinn trjágróður bíður uppá. Hvers vegna viltu láta gera það? Bæta lífsgæðin í Grundarhverfi. Með því að brjóta niður austan og norðaustan vindinn þá getum við öll notið útivistar betur og lengur. Börnin fá skemmtileg leiksvæði. Skjólbelti skapa velsæld fyrir lágmarks kostnað.

Points

Mjög þarft verkefni. Minnkum storminn, þegar hann geysar.

Það þyrfti að setja meiri trjágróður á hæðina fyrir ofan Jörfagrund og austur fyrir áhaldahús. Græða upp melinn vestan við áhaldahús vegna hættu á sandfoki. Hugsanlega myndi ösp fyrir ofan brautarholtsveginn draga úr vindstyrk og meðfram flötinni þar sem beygt er niður Hofsgrund.

Kæri hugmyndahöfundur, Til hamingju hugmyndin þín hlaut kosningu í Hverfið mitt 2021. Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022, niðurstöður kosninga má sjá á www.Hverfidmitt.is. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is/. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var ein af efstu fimm og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Næsta skref í verkefninu er að velja aðrar þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information