Upphitun og hringtorg.

Upphitun og hringtorg.

Hvað viltu láta gera? Hita upp Fálkabakka, alla leið að Vesturhólum og búa til hringtorg við Höfðabakka og Vesturhóla. Hvers vegna viltu láta gera það? Bílar festast á þessari leið að vetri til og á niðurleið í 90 gráðu beygunni á Höfðabakkanum hafa bílar og strætisvagnar farið út af (á stórhættulegum stað). Einnig er alltof oft ekkert nema heppnin ein að ekki verði daglegir árekstrar á gatnamótunum, Höfðabakki - Vesturhólar. Einnig þarf að skoða vinstri beygjuna frá Höfðabakka inn á Fálkabakkann.

Points

Löngu tímabært.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins og verkefnið er háð samþykki skipulags- og samgönguráðs. Einnig felur upphitun í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information