Skipta út efstu brúnni í Elliðaárdal

Skipta út efstu brúnni í Elliðaárdal

Hvað viltu láta gera? Skipta út efstu brúnni í Elliðaárdal fyrir brú sem er laus við tröppur. Hvers vegna viltu láta gera það? Vegna þess að þessi brú er ill yfirferðar fyrir fólk sem á erfitt um gang og ómöguleg fyrir hjólreiðafólk. Þessi brú er mikil hindrun fyrir hjólreiðafólk um dalinn og ekki síður fótafúið göngufólk. Ný brú gæfi loks möguleika á góðum útivistarhring um efsta hluta hins dásamlega Elliðaárdals.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í ferli annars staðar innan borgarkerfisins. Það liggur fyrir vilji til að framkvæma þetta og er í undirbúningi ásamt því að þetta er utan fjárheimildar verkefnisins Hverfið mitt. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information