Ég myndi vilja fá jarðvegsvinnslu á Sorpu.

Ég myndi vilja fá jarðvegsvinnslu á Sorpu.

Hvað viltu láta gera? Hafa gám þar sem fólk gæti komið með lífrænan úrgang af heimilium í bréf/pappírsíláti og úr því væri gerð molta. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er náttúru/umhverfisvænt. Það hafa ekki allir aðstöðu heima til moltugerðar. Þetta væri hagkvæmt og gott á allan hátt.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Það er áformað hjá borginni að fara safna lífrænum úrgangi sérstaklega og er það verkefni í farvegi annars staðar í borgarkerfinu á tilraunastigi. Því er ekki hægt að kjósa um hugmyndina að svo stöddu. Einnig felur hugmyndin í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins Hverfið mitt. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information