skjólveggur frá skóla og leikskóla út að hverfi

skjólveggur frá skóla og leikskóla út að hverfi

Hvað viltu láta gera? Ég vill fá háan skjólvegg frá grunnskólanum og leikskólanum að esjugrundinni Hvers vegna viltu láta gera það? Það er oft gríðarlega sterkir vindar þarna sem börn þurfa að labba til skóla og leikskóla. Þetta mundi kaupa gríðarlega mikilvægt skjól

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins og skipulagsferli verkefnisins yrði of langt fyrir tímaramma verkefnisins Hverfið mitt. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Já, þetta er slæmur staður í vondum N-NA-A átta veðrum. Það er óviðunandi, að skólabörn hér í hverfinu þurfi að vera í veður barningi á göngu til og frá skóla.Opinn staður og mjög lítið skjól. Eitthvað þarf að gera til að bæta aðstæður þarna. Trén sem standa þarna áveðra og veðurbarin féngju þá líka skjól..

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information