Fjölga bláum stæðum við þvergötur í Miðborg

Fjölga bláum stæðum við þvergötur í Miðborg

Hvað viltu láta gera? Fjölga bláum stæðum fyrir hreyfihamlaða við þvergötur og smærri götur í kringum Laugaveg, Skólavörðustíg, Bankastræti, Austurstræti, Pósthússtræti og Aðalstræti svo fátt eitt sé nefnt. Þetta mætti gera með uppbyggðum, jöfnum og rúmgóðum stæðum við allar þveranir hliðargatna við þessar götur. Hvers vegna viltu láta gera það? Fatlað, eldra og hreyfihamlað fólk kvartar undan aðgengi á þessu svæði sem ég tel réttmæta gagnrýni. Ég tel þó einnig að lausnin eigi að geta verið samrýmanleg frábærum göngugötum. Fólk sem ekki hefur P-skírteini ætti hæglega að geta gengið fimm mínútur frá næsta bílastæðahúsi en það er mannréttindamál að gera vel við hreyfihamlað fólk í bílastæðamálum. Með þessu móti tel ég líka að við getum aukið ánægju allra af göngugötum.

Points

Göngugötur eru frábærar fyrir okkur sem ganga en það þarf verulega að bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða í miðbænum

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í ferli annars staðar innan borgarkerfisins. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu í þá vinnu hjá samgöngudeild umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information