Að minnka umferð á gatnamótum Barónsstígs og Egilsgötu (við Austurbæjarskóla)

Að minnka umferð á gatnamótum Barónsstígs og Egilsgötu (við Austurbæjarskóla)

Það þarf að finna leiðir til að minnka bílaumferð á þessum gatnamótum, en umferð er sérstaklega mikil á morgnana þegar grunnskólabörn mæta í skólann. Stór hluti nemenda Tækniskólans mætir á bíl og þessi gatnamót eru hættuleg gangandi vegfarendum, stórum sem smáum.

Points

Stór hluti nema Tækniskólans mætir á bílum í skólann. Á sama tíma eru nemendur í Austurbæjarskóla að koma gangandi í sinn skóla. Börn austan Barónsstígs koma gangandi þessa leið í skólann. Það er tímaskekkja að skaffa bílastæði fyrir framhaldsskólanema og ástæðulaust að breyta öllum auðum svæðum í grennd við grunnskóla í bílastæði. Meðfylgjandi myndband, sem sýnir umferðina á þessum gatnamótum kl. 8 að morgni, er tekið af núverandi bílastæði, fyrrverandi leiksvæði.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information