Bókasafn í Seljahverfi. Samnýta skólabókasafn.

Bókasafn í Seljahverfi. Samnýta skólabókasafn.

Hvað viltu láta gera? Opna bókasafn fyrir almenning með því að samnýta aðstöðu skólabókasafns Ölduselsskóla. Hvers vegna viltu láta gera það? Mikilvægt að hafa nærþjónustu í göngufjarlægð. Bókasafnið myndi þjóna bæði börnum og fullorðnum. Skólinn hefði forgang að notkun safnsins en síðan yrði bókasafnið opnað almenningi á völdum tímum. Almenningur gæti t.d. skoðað dagblöð og tímarit. Með aukinni fjarvinnu eykst þörfin á nærþjónustu í íbúðahverfum. Staðsetningin myndi styrkja hverfiskjarnann í Rangárseli sem er hugsaður fyrir verslun og þjónustu. Í dag er bókasafn Breiðholts í Gerðubergi sem er heldur langt frá Seljahverfi en vel mætti hugsa sér samstarf á milli þessara eininga einkum varðandi millisafnalán á bókum fyrir fullorðna.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem ekki er um að ræða eiginlega nýframkvæmd. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information