Arnarnesveg í stokk, aukið rými til útivistar

Arnarnesveg í stokk, aukið rými til útivistar

Hvað viltu láta gera? Arnarnesvegur verði settur í stokk til að skapa aukið rými til útivistar. Reykjavíkurborg hefur gert tillögu að vetrargarði efst í Breiðholti. Ef efsti hluti Arnarnessvegar yrði settur í stokk skapar það mun stærra svæði til útivistar. Vetrargarðurinn er hugsaður sem útivistarsvæði fyrir alla Reykvíkinga en ef uppbyggingin tekst vel yrði þetta eflaust vinsælt meðal íbúa nágrannasveitarfélaga. Það væri synd ef svæðið hefði takmarkaða vaxtarmöguleika. Hvet Reykjavíkurborg að koma á samstarfi við Kópavogsbæ og Vegagerðina um að setja Arnarnesveg í stokk til að skapa aukið rými til útivistar. Hvers vegna viltu láta gera það?

Points

Var ekki búið að afskrifa þenna veg.

Rúnar ég er ekki viss um að það sé búið að afskrifa framkvæmdina. Mér finnst ríkja ákveðin óvissa. Núverandi umhverfismat bannar stofnbraut, spurning hvort þetta verði vegur með 2 akreinum í stað 4. En ef búið er að afskrifa veginn, mæli ég með að Rvk og Kópavogur taki höndum saman og taki það frá fyrir vetraríþróttasvæði höfuðborgar til framtíðar.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information