Bryggjuhverfi bætt umhverfi

Bryggjuhverfi  bætt umhverfi

Hvað viltu láta gera? Bæta og laga meðfram bryggjunni .Setja kaðla á milli stauranna á bryggjunni . Koma i veg fyrir að börn geti dottið þarna fram af . Veit að fólki sem þorir ekki að fara með börnin þarna út af hættunni. Þyrfti lika að koma með smá bryggju þar sem væri hægt að fara og gefa fuglunum. Mætti lika hafa þessa bryggju sem dorgbryggju fyrir þa´sem vilja dorga. Bæta svo aðgengi . .Sanda og salta reglulega og bæta lýsingu við göngustíginn frá Stoppustöð við Gullinbrú. Mála skil þannig að gangandi og hjólandi séu ekki allir í einni kös. Bæta lýsingu mjög áríðandi. . Setja svo bekki t d við bryggjuna þar sem fólk getur sest niður. Hvers vegna viltu láta gera það? vegna þess að þetta myndi bæti lífgæðin hér í hverfinu. Fallegt hverfi en mætti vera meira líf og meira í boði fyrir þá sem vilja vera úti og ganga. Börnin hefðu gaman af þvi að dorga og ganga úti , fuglarnir og sjórinn .. .Alltaf eitthvað nýtt og spennandi að sjá . Þarf að örva þau og vekja athygli á því sem er fallegt í umhverfinu. l Setja t d tvo bekki við bryggjuna þar sem væri hægt að setjast niður og horfa á fuglana og sjóinn. Heilsubót fyrir alla. .

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/ Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information