Fleiri og betri endurvinnslugámar

Fleiri og betri endurvinnslugámar

Hvað viltu láta gera? Það vantar mun fleiri grenndarstöðvar í Háaleitishverfið. Einnig þarf að koma upp endurvinnslugámum fyrir málma, lítil rafmagnstæki, spilliefni (spreybrúsa, sterk hreinsiefni, málingadollur o.s.frv.). Hvers vegna viltu láta gera það? Auðvelda fólki aðgang að endurvinnslustöðvum og hvetja fólk til að hugsa umhverfisvænt. Í dag þurfa allir að keyra þó nokkurn spöl til að enduvinna, málma, raftæki, spilliefni og allt annað.

Points

Styð þessa hugmynd. Erlendis eru td. gámar með smærri hólfum fyrir td. rafhlöður og ljósaperur,

Það eru ekki allir á bíl. Grendastöð á að vera í göngufæri og með gáma fyrir sem flest efni og síðast enn ekki síst losa mun oftar enn gert er, alltof oft fullir gámar þegar maður kemur.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Fjölgun og staðsetning grenndarstöðva er í ferli annars staðar í borgarkerfinu og verður þessari hugmynd komið áfram sem ábendingu í þá vinnu. Stefnt er að því að íbúar hafi aðgengi að grenndarstöðvum í 500 metra fjarlægð frá heimili sínu eða minna. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information